Hraunkot æfingasvæði í Keili
 

 

 

Golfkennsla.is > Fréttir

 

Fréttir

 

Ný verðskrá fyrir einkakennslu 18.11.2009

Verðskrá mín fyrir einkakennslu breytist núna í fyrsta sinn í tvö ár.

Eftirfarandi er ný verðskrá mín fyrir einkakennslu:
 
30 mín kr. 4.000
45 mín kr. 5.500
5x30 mín kr. 18.000
 
Ef fleiri en einn er í tíma bætast við kr. 500 per nemanda.
 
Boltagjald þar sem kennslan fer fram er ekki innifalið. Á veturna kenni ég að mestu í  Hraunkoti (www.hraunkot.is). Sem dæmi kosta 50 boltar kr. 500, en nemendum mínum gefst kostur á að kaupa boltakort með 20% afslætti. Á sumrin kenni ég á æfingasvæði GKG.
 
Til að fá nánari upplýsingar eða panta tíma vinsamlegast sendið mér tölvupóst á ulfar@golfkennsla.is, eða hringið í mig í síma 862-9204. Óskir þú eftir að panta gjafabréf þá get ég sent gjafakort með tölvupósti sem .pdf skjal að lokinni millifærslu (og þú prentar út), eða við mælt okkur mót til afhendingar skjalsins.
 
Rétt er að taka fram að framboð einkakennslutíma seinnipart dags er takmarkað þar sem ég sinni unglingaþjálfun GKG á þeim tíma. Hinsvegar er hægt að bóka tíma frá 10 - 15. Frá maí get ég aftur á móti bókað tíma seinniparta og kvöld.

Með bestu kveðjum,


Úlfar Jónsson
PGA golfkennari
Íþróttastjóri GKG
+354 862 9204
www.golfkennsla.is



Tilbaka | Prentvæn útgáfa



Golfkennsla hjá Úlfari

Enn betra golf

Samtök atvinnukylfinga

Meistaragolf á DVD

Viltu auglýsa hér?


Golfkennsla.is