Hraunkot æfingasvæði í Keili
 

 

 

Golfkennsla.is > Golfkennsla

 

Golfkennsla

 

Gjafabréf - tilvalin jólagjöf

Kæri kylfingur.

Nú líður að jólin og langar mig að minna á gjafabréfin í golfkennslu hjá mér, en þau hafa verið mjög vinsæl undanfarin ár. Auk hefðbundinna gjafabréfa í golfkennslu er nú hægt að sameina golf- og líkamsgreiningu, en ég ásamt Davíð Stefáni Guðmundssyni, FIA einkaþjálfara, bjóðum uppá þess háttar pakka, sem er einkar áhugaverður fyrir þá sem vilja æfa markvissar í líkamlega þættinum með golfhreyfingarnar í huga.

   

Varðandi pakka með golf- og líkamsgreiningu þá greinir Úlfar golfsveifluna með upptöku- og golfhugbúnaði og sendir þig síðan til Davíðs sem útbýr sérsniðna áætlun með styrktar- og liðleikaæfingum.

Smelltu hér til að sjá verðskrá Úlfars. Gjafabréf hjá Úlfari og Davíð í golf- og líkamsgreiningu kostar kr. 11.900.

Davíð Stefán Guðmundsson

 

Sífellt fleiri golfarar á Íslandi átta sig á mikilvægu samspili golfæfinga og líkamsræktar. Ekki þarf að leita langt út fyrir landsteinana til að finna afburða golfara sem sameinað hafa þessa tvo þætti, nægir þar að nefna Tiger Woods sem fyrirmynd í þessum málum. Í líkamsrækt er mikilvægt að vinna með þær þrjár stoðir sem allir golfarar þurfa að rækta til að ná árangri. Þær stoðir eru  styrkur,  liðleiki og jafnvægi. Til að tryggja hámarks árangur er unnið náið með golfkennara, en oft kemur hann auga á líkamlega þætti sem hamla golfsveiflunni.

Golfkennari skilar matsblaði til líkamsræktarþjálfara sem síðan vinnur með þær niðurstöður og stillir upp heildstæðri líkamsræktaráætlun svo af hljótist hámarks árangur.
Ofangreint er að miklu leyti byggt á þjálfunarfræðum Paul Check, en hann er einn af fremstu aðilum heims í líkamsþjálfun golfara. Inn í þetta er blandað aðferðafræði frá öðrum aðilum sem standa framarlega í heimunum í þessum málum.
Sé þörf á er unnið í samráði við sjúkraþjálfara sem fer enn dýpra í ástandsgreiningu og meðhöndlun á atriðum sem erfitt reynist að ná til með hefðbundnum æfingum.
Með því að sameina krafta golfkennara, líkamsræktarþjálfara og sjúkraþjálfara eru hámarkaðar líkurnar á því að þú náir árangri og golfsumarið 2010 verði þitt besta hingað til.

Með bestu kveðju, Davíð Stefán Guðmundsson

Til að panta gjafabréf eða fá nánari upplýsingar vinsamlegast sendið mér tölvupóst á ulfar@golfkennsla.is, eða hringið í mig í síma 862-9204. Óskir þú eftir að panta gjafabréf þá get ég sent gjafakortið sem .pdf skjal að lokinni millifærslu, eða við mælt okkur mót til afhendingar skjalsins.

Með bestu jólakveðjum,

Úlfar Jónsson
PGA golfkennari
Íþróttastjóri GKG
+354 862 9204
www.golfkennsla.is


Tilbaka | Prentvæn útgáfa

Golfkennsla hjá Úlfari

Enn betra golf

Samtök atvinnukylfinga

Meistaragolf á DVD

Viltu auglýsa hér?


Golfkennsla.is