Tíu ráð til að bæta leikhraða
Ég mun gera mitt besta til að halda uppi góðum leikhraða.
Hægur leikur er eitt helsta vandamálið í golfi í dag. Það eru ýmsar ástæður fyrir því hvers vegna leikurinn gengur stundum of hægt; s.s. fleiri kylfingar á vellinum á mismunandi getustigi, frá kylfingum sem eru að stíga sín fyrstu spor í íþróttinni, til forgjafarlágra kylfinga sem líkja eftir hægum leik atvinnumanna (sem eru að keppa um gríðarlegt verðlaunafé og sess í golfsögunni). Einnig eru golfvellir jafnan erfiðari í dag heldur en áður, karginn er oft þykkari vegna meiri áburðargjafar og svo líta sandglompur og vatnstorfærur svo fjári vel út á mynd
Eftirfarandi eru 10 ráð um það hvernig megi hraða leik. Hafðu þó í huga að ekki er gott að flýta sér að slá höggin, enda leiðir það til hægari leiks þar sem höggafjöldinn hækkar yfirleitt með því móti. Að láta leikinn ganga hraðar fyrir sig snýst fyrst og fremst um gott skipulag.
Á myndinni má sjá kylfing "plumb bobbing", eða að sikta út púttlínuna. Vinsamlegast eyðið ekki tíma í slíkt, því það er tímasóun og skilar ekkert sérlega gagnlegum upplýsingum.
Gakktu hratt milli högga Átján holu hringur er u.þ.b. 10 km göngutúr. Gakktu rösklega og þú uppskerð verulega heilsubót, brennir fleiri kaloríum og eykur úthald þitt. Mundu bara að drekka a.m.k. 1,5 lítra af vatni eða úthaldsdrykkjum á hringnum þar sem líkaminn tapar vökva og steinefnum við hreyfinguna.
Vertu tilbúin(n) að slá þegar röðin er komin að þér Fylgstu með hinum kylfingunum í ráshópnum og vertu tilbúin(n) að slá þegar röðin er komin að þér. Einnig er gott að gera samkomulag þegar leikur hefst að sá kylfingur sem er tilbúinn, hvort sem hann á að slá fyrst eða ekki, getur leikið á undan, svo lengi sem það trufli ekki hina. Á teig getur verið gott að höggstyttri slái fyrst, meðan ráshópur á undan kemst úr færi hinna högglengri.
Aflaðu upplýsinga meðan aðrir eru að leika Reyndu að vera búinn að meta fjarlægðina og velja kylfu þegar röðin er komin að þér að slá innáhögg. Skoðaðu púttlínuna meðan aðrir pútta, en gættu þess að valda þeim ekki truflun á meðan þú gerir það.
Skráðu skorið á næsta teig meðan aðrir eru að slá, ekki á flötinni Flaggið er komið í holu, leikmenn ráshópsins á undan þér ganga af flötinni og þú ert tilbúinn að slá, en verður að bíða vegna þess að einn leikmannana stendur enn á flötinni og er að telja höggin og skrá á skorkortið. Þetta er mjög pirrandi og skapar óþarfa töf. Mun betra er að skrá skorin á næsta teig meðan aðrir eru að slá teighöggin, eða skrá skorið meðan aðrir eru að pútta. En ekki standa einn eftir á flötinni og láta ráshópinn á eftir bíða eftir þér meðan þú skráir niður skorið.
Kláraðu stutt pútt – gefðu örugg pútt Ef boltinn er það nálægt holu að púttið sé nánast öruggt, haltu þá áfram og kláraðu, gættu þín samt að stíga ekki í púttlínu meðspilarana. Gott er að hafa þá reglu að stutt pútt séu gefin, t.d. innan við pútterslengd mínus gripið (höggið sem þurfti í púttið er þó alltaf talið). Þetta sparar heilmikinn tíma í stað þess að merkja boltann og bíða. Þetta er þó að sjálfsögðu ekki leyfilegt í keppnum.
Hleyptu hraðari ráshópum framúr Ef ráshópur þinn hefur dregist afturúr og leikmenn á eftir hafa beðið á flestum eða öllum brautum, hleypið þá framúr. Ef ráshópur þinn dregst afturúr, þá á fyrst að gera tilraun til að ná leikmönnum á undan, en ef það tekst ekki innan 1-2 brauta þá er rétt að hleypa framúr.
Skildu pokann/kerruna eftir réttu megin við flötina Þegar þú nálgast flötina skaltu huga að því hvar næsti teigur sé. Það sparar tíma að skilja golfpokann eftir þeim megin sem teigurinn er, þar sem þú þarft þá ekki að ganga í kringum flötina með kerruna.
Taktu með þér 2-3 kylfur ef þú þarft að fara hinum megin við flötina eða útfyrir braut Ef boltinn þinn lendir fyrir aftan flöt, fjær næsta teig á eftir, skaltu samt skilja pokann eftir teigmegin við flötina. Taktu heldur með þér pútterinn og eina til tvær kylfur sem þú myndir vippa með. Einnig, ef þú slærð högg út í móa, á svæði þar sem illgreiðfært er að fara með kerruna, skaltu taka með þér a.m.k. eina aukakylfu sem er með miklum fláa ef boltinn skyldi liggja það illa að þú þarft að koma boltanum fyrst og fremst inn á brautina.
Reynslumiklir kylfingar bera ábyrð á reynsluminni Kylfingar með mikla reynslu bera ákveðna ábyrgð á reynsluminni meðspilurum. Það er þeirra hlutverk, hvort sem þeim líkar betur eða verr, að reyna að aðstoða og leiðbeina þeim að bæta leikhraða sinn, t.d. með því að benda á ákveðin skipulagsatriði sem auka leikhraða. Þó ber að gæta nærgætni þegar öðrum eru gefin ráð, ekki skipa fyrir “þú verður að flýta þér”, heldur frekar að leiðbeina á góðlátlegan máta, það gefur betri árangur og andrúmsloftið í hópnum verður betra.
Æfingasveiflan Æfingasveifla gegnir fyrst og fremst því hlutverki að liðka líkamann og minna á hverjir á að framkvæma hreyfingarnar í sveiflunni. Ekki eyða of miklum tíma í að taka gripið, stöðuna. Ekki fara yfir allan tékklistann fyrir æfingasveiflunni. Sveiflaðu kylfunni létt einu sinni til þrisvar sinnum fram og til baka og stilltu þér síðan upp við boltann. Þá getur þú gengið úr skugga um að grunnatriðin séu eins og þau eiga að vera.
Vonandi gagnast þessi ráð og verða til þess að auka leikhraða á golfvöllum landsins. Hringurinn á ekki að þurfa að taka mikið meira en fjóra klukkutíma að leika, ef allir halda vel á spöðunum, eða kylfunum ölluheldur.
Þessi grein er sjötta og seinasta greinin mín um leikskipulag og hugarfar. Ef þú vilt lesa fyrstu fimm greinarnar, smelltu þá á viðfangsefni greinanna: 1. Vanaferli. 2. Að halda sér í nútíðinni. 3. Að slá með jákvæðu hugarfari. 4. Að velja rétta kylfu í innáhöggi. 5. Að sveifla í jafnvægi.
Með bestu kveðjum og von um ánægjulegar stundir á golfvellinum.
Úlfar Jónsson PGA golfkennari ulfar@golfkennsla.is
Tilbaka | Prentvæn útgáfa
|